Create Your First Project
Start adding your projects to your portfolio. Click on "Manage Projects" to get started
Gróðurhúsagarðurinn
Markmið verkefnisins var að skapa fjölbreytt og notalegt útirými þar sem hægt er að njóta garðsins frá vori fram á haust. Gróðurhús í nútímalegum stíl er miðpunktur garðsins og tengir saman dvalarsvæði, gróður og útiveru á einstakan hátt. Rúmgóðir timburpallar, flísalögð svæði, sérsmíðaðir bekkir og skjólveggir mynda fallega heild sem býður upp á fjölbreytta möguleika til samveru og slökunar.
Sérhannað útieldhús með yfirbyggingu gerir svæðið að náttúrulegum samkomustað fjölskyldu og vina, á meðan gróðurhúsið skapar skjólgott rými fyrir kaffibollann, ræktun eða notalegar stundir óháð veðri. Hönnunin byggir á skýrum línum, náttúrulegum efnum og samspili timburs, stáls og steins sem gefa garðinum nútímalegt en hlýlegt yfirbragð.





