Pallahönnun
- garðahönnun fyrir minni svæði
Góð hönnun þarf ekki að byrja á stóru verkefni.
Ertu með pall, inngarð, pottasvæði eða hluta garðsins sem þú vilt nýta betur?
Urban Beat býður upp á afmarkaða garðhönnunarþjónustu fyrir minni svæði, 50–300 m².
Þjónustan hentar vel þegar verkefnið er skýrt afmarkað og þú vilt fá faglega heildarlausn áður en framkvæmdir hefjast. Markmiðið er að gera góðar hugmyndir skýrar og framkvæmanlegar – með réttu skipulagi, efnisvali og samhengi við húsið og umhverfið.
Frá hugmynd
að góðu útisvæði
Góð hönnun snýst ekki aðeins um hvernig svæðið lítur út.
Við horfum á hvernig það er notað, tengsl við húsið, skjól, sólargang, útsýni, efnisval og hvernig ólíkir hlutar rýmisins vinna saman.
Segðu okkur
frá verkefninu þínu
Sendu okkur nokkrar upplýsingar um svæðið, áætlaða stærð og hvað þig langar að gera.
Við metum hvort þessi þjónusta henti verkefninu og hvert sé besta næsta skref.



