Landslagshönnun
- frá hugmynd að framkvæmd
Vönduð umgjörð skapar verðmæti.
Vel hönnuð útisvæði bæta umhverfið, styðja við starfsemi og skapa staði þar sem fólk vill dvelja.
Urban Beat vinnur að landslagshönnun fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, fasteignafélög, stofnanir og aðra framkvæmdaraðila.
Við tökum að okkur verkefni af ólíkum stærðum og getum komið að þeim allt frá fyrstu hugmynd og skipulagi
til fullunninna útboðsgagna og ráðgjafar á framkvæmdatíma.
Við leggjum áherslu á að skapa sterka heild þar sem notagildi, fagurfræði, efnisval, gróður og umhverfi vinna saman.
Verkefni af ólíkum toga
Við vinnum meðal annars að hönnun:
Útivistarsvæða · Torga og almenningsrýma · Leiksvæða · Ferðamannastaða · Umhverfis opinberra bygginga · Hótela og gististaða · Fjölbýlishúsa og sameiginlegra útisvæða
Hvert verkefni hefur sínar forsendur. Við byrjum því á að greina staðinn, notendur hans og markmið verkkaupa áður en hugmyndin er mótuð.
Frá heildarhugmynd að útfærslu
Góð landslagshönnun þarf að virka á fleiri en einum mælikvarða.
Við horfum á stóru myndina – tengingar, aðkomu, flæði fólks, dvalarsvæði, ásýnd og tengsl við byggingar og nærumhverfi – en jafnframt á smáatriðin sem ráða miklu um endanlega upplifun og gæði staðarins.
Þar koma meðal annars saman yfirborðsefni, gróður, lýsing, götugögn, skjól, hæðarsetningar og sérhannaðar lausnir.
Hönnun sem hægt er að framkvæma
Við tryggjum að hönnunin sé ekki aðeins sterk á blaði heldur raunhæf, hagkvæm og vel útfærð til framkvæmda.
Urban Beat getur annast hönnun og tæknilega skjalagerð í gegnum ólík stig verkefnisins, meðal annars:
-
Deiliskipulag og hugmyndavinnu
-
Frumhönnun og útfærsluhönnun
-
Grunnmyndir, hæðarsetningar og efnisáætlanir
-
Gróður- og lýsingarteikningar
-
Útfærslu- og sérteikningar fyrir stíga, dvalarsvæði, leiksvæði og sérhönnuð mannvirki úr timbri, málmi og öðrum efnum
-
Útboðsgögn, magntölur og kostnaðaráætlanir
-
Ráðgjöf og samstarf við verktaka á framkvæmdatíma
Umfang þjónustunnar er aðlagað hverju verkefni. Við getum tekið þátt í afmörkuðum hluta þess eða fylgt verkefninu frá fyrstu hugmynd til framkvæmda.
Samvinna frá upphafi
skilar betri niðurstöðu
Landslagshönnun tengist gjarnan mörgum öðrum þáttum verkefnisins. Því leggjum við áherslu á gott samstarf við verkkaupa, arkitekta, verkfræðinga, lýsingarhönnuði, verktaka og aðra ráðgjafa.
Þegar landslagið er tekið inn snemma í hönnunarferlið skapast meiri möguleikar á að samþætta byggingar, aðkomu, útisvæði, gróður, ofanvatnslausnir og tæknilega innviði í eina heild.
Staðir sem fólk vill nota
Markmiðið er ekki aðeins að leysa tæknilegar forsendur verkefnisins heldur að skapa umhverfi sem hefur karakter og endist vel.
Ertu með verkefni í undirbúningi?
Við komum gjarnan inn snemma í ferlið til að ræða möguleika svæðisins, umfang verkefnisins og hvaða hönnunargögn þarf til að koma því áfram.
Segðu okkur frá verkefninu og við skoðum næstu skref með þér.



