Garðahönnun
- heildstæð hönnun fyrir stærri garða
Góður garður verður til með góðum undirbúningi.
Garðurinn er framlenging á heimilinu og umgjörð um daglegt líf. Góð garðhönnun snýst því ekki aðeins um útlit heldur hvernig rýmið er notað, hvernig það tengist húsinu og hvernig ólíkir hlutar þess vinna saman.
Fyrir garða og lóðir yfir 300 m² bjóðum við upp á heildstæða garðhönnun þar sem við horfum meðal annars til þarfa eigenda, aðstæðna á lóð, skjólmyndunar, sólargangs, útsýnis, gróðurs,
efnisvals og tengsla við húsið og umhverfið.
Hönnunarferlinu er skipt í þrjú skref. Þannig er hægt að taka upplýstar ákvarðanir á hverju stigi og velja hversu langt á að fara með útfærslur og verkgögn.
Fyrsta skrefið – við skoðum lóðina
Áður en hönnun hefst komum við á staðinn og förum yfir verkefnið með eigendum. Við skoðum aðstæður á lóðinni, ræðum hvernig garðurinn á að nýtast og förum yfir hugmyndir, þarfir og markmið. Jafnframt skoðum við möguleika lóðarinnar og þær forsendur sem geta haft áhrif á hönnunina.
Í kjölfarið leggjum við fram verðmat og tillögu að umfangi hönnunar.
Hvað kostar garðahönnun?
Kostnaður við Skref 1 og 2, sem saman mynda hefðbundna garðahönnun með þrívíðum myndum og málsettri grunnmynd, er almennt:
500.000–1.200.000 kr. án vsk.
Endanlegt verð ræðst meðal annars af stærð lóðarinnar, aðstæðum, umfangi hönnunar og þeim lausnum sem verkefnið kallar á.
Skref 3 – verkteikningar og sérgögn – er verðlagt sérstaklega eftir umfangi.
Hönnun sem leggur grunn að framkvæmdinni
Vel útfærð hönnun gerir ákvarðanir auðveldari áður en framkvæmdir hefjast. Hún hjálpar til við að samræma ólíka þætti verkefnisins, fá samanburðarhæf tilboð og draga úr því að mikilvægar ákvarðanir þurfi að taka þegar framkvæmdir eru þegar hafnar.
Markmiðið er að garðurinn myndi eina heild – þar sem hús, útisvæði, gróður og mannvirki vinna saman.
Segðu okkur frá verkefninu þínu
Sendu okkur upplýsingar um lóðina og hvað þig langar að gera. Við byrjum á að skoða verkefnið, ræða hugmyndir og þarfir og leggjum í framhaldinu fram tillögu að umfangi og verði hönnunar.



