Hugmyndaráðgjöf
Vandaður garður byrjar á góðri hugmynd
Við byrjum á heimsókn og samtali um hvernig þú vilt nýta útisvæðið. Út frá óskum þínum og aðstæðum mótum við hönnunartillögu og skilum grunnmynd í kvarða með skýringum.
Hugmyndaráðgjöf er í tveimur skrefum á föstu verði, frá 200.000 til 400.000 kr. án vsk., eftir stærð þess svæðis sem á að hanna. Skoða verðskrá.
Skref 1 – Hugmyndateikning
Heimsókn og samtal á staðnum, ein hönnunartillaga og grunnmynd í kvarða með skýringum á skipulagi, efnisvali og helstu lausnum.
Skref 2 – Breytingar og málsetningar
Ein umferð breytinga í samræmi við athugasemdir þínar. Grunnmyndin er síðan uppfærð og helstu málsetningum bætt við.
Greitt er fyrir hvort skref þegar því lýkur.
Skref 3 - Gróður- og ljósaplan
Þegar skipulag garðsins liggur fyrir getum við útfært gróður og lýsingu nánar.

Leyfðu okkur að hanna þitt draumasvæði
Fyllið út formið eða hringið í okkur til að bóka fund eða heimsókn!
Urban Beat landslagsarkitektar
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
+354 823 0001



